Gummi Ben opnaði í gær barinn Gumma Ben í miðbæ Reykjavíkur ásamt meðeigendum sínum þeim Andrési Björnssyni og Ómari Ingimarssyni. Var sýnt frá þessu í þættinum Ísland í dag í gærkvöldi.
Hugmynd staðarins kviknaði fyrir mörgum árum hjá Ómari, einum af eigendum staðarins en varð aldrei úr hugmyndinni fyrr en nú. Aðspurðir um nafnið á staðnum sögðu þeir félagar Ómar og Andrés að Gummi Ben væri einfaldlega “Legend”.
Staðurinn verður sportbar og skemmtistaður sem mun sýna alla helstu íþróttaviðburði ásamt ýmsum öðrum viðburðum. Lifandi tónlist, tónleikar og ýmislegt annað verður í boði.
Barinn er staðsettur þar sem skemmtistaðurinn Húrra var áður til húsa.