Auglýsing

Top Boy snýr aftur á Netflix

Þegar Top Boy sería tvö endaði árið 2013 var beðið með eftirvæntingu eftir þriðju seríu en biðin varð löng.

Hugmyndasmiður þáttanna segir að þátturinn hafi einfaldlega hætt, þrátt fyrir margar ósvaraðar spurningar í lok annarrar seríu. Aðdáendur út um allan heim biðu lengi eftir nýrri seríu en höfðu gefið upp vonina eftir langa bið.

En einn af þessum aðdáendum reyndist vera heimsfrægur rappari eða Drake. Hann elskaði þættina það mikið að hann tók það á sig að blása lífi í þá á ný. Hann tók að sér starf yfirframleiðanda þáttanna og kom þeim aftur af stað í framleiðslu hjá Netflix. Hann ákvað þó að vera sem minnst með puttana í þessu sjálfur og láta fagfólk um. Hann sá til þess að sömu handritshöfundar og sömu leikarar yrði ráðnir aftur svo áhorfendur eiga væntanlega von á góðu.

Eitt er víst að það bíða margir eftir þessari endurkomu ársins. Þættirnir koma á Netflix föstudaginn 13. september.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing