Það er þekkt í módelbransanum að stelpur þurfi að vera extra mjóar og margar stelpur hafa þurft að svelta sig til þess að fá vinnu sem módel.
Hunter McGrady var ein af þeim stelpum. Hún vildi bara verða módel og lagði sig alla fram við það. Hún reyndi að svelta sig því fólk var alltaf að segja henni að hún væri ekki nógu mjó og sumir sögðu að hún væri of stórbeinótt til þess að vera módel.
„Mjaðmirnar mínar voru alltaf bras. Þær voru alltaf of stórar þó að ég hafi verið búin að minnka þær eins og ég gat. Það var líkamlega ekki hægt að minnka þær meira, þó að allir sögðu mér að ég gæti það. Á þessum tíma var ég farin að halda að ég gæti ekki unni sem módel “ – Hunter
Það var þá sem að Hunter gafst upp á því að reyna vera mjó. Hún leyfði líkamanum að stækka í sína náttúrulegu stærð þannig að henni leið vel.
Nú starfar hún sem „curvy“ módel og það hefur aldrei verið eins mikið að gera hjá henni. Hún var til dæmis í sundfataútgáfu tímaritsins Sports Illustrated.
Hunter segir að henni hafi aldrei liðið svona vel bæði í líkama og sál og að draumur hennar að verða módel sé loksins orðinn að veruleika.