Auglýsing

Trump hæðist að Thunberg á Twitter

Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hæðast að hinni 16 ára gömlu Gretu Thunberg í Twitter færslu sinni.

Tíst forsetans kom seint í gærkvöldi, eftir að Thunberg talaði fyrir fullum sal heimsleiðtoga á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í gær. En Donald sem var viðstaddur ráðstefnuna gekk framhjá henni án þess að virða hana viðlits og fékk hann stingandi augnaráð frá Thunberg.

Í tísti sínu skrifar hann þetta:

„Hún virðist mjög hamingjusöm ung stúlka sem hlakkar til bjartrar og yndislegrar framtíðar. En yndislegt að sjá!“

Fólk hefur sent Bandaríkjaforseta kaldar kveðjur á samfélagsmiðlum fyrir tíst hans, þar sem hann sendir Thunberg þessi kaldhæðnis orð.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing