Auglýsing

Hljómsveitin Tindersticks kemur til Íslands

Breska hljómsveitin Tinderstick ætlar að gleðja íslenska tónlistarunnendur og spilar í Hljómahöll föstudaginn 7. febrúar næstkomandi.

„Tind­ersticks hafa frá stofn­un 1992 verið ein áhrifa­mesta hljóm­sveit sinn­ar teg­und­ar í heim­in­um. Hún hef­ur gefið út 10 hljóm­plöt­ur og kem­ur sú 11. „No Trea­sure but Hope“ út nú í nóv­em­ber. Af því til­efni hef­ur hljóm­sveit­in blásið til tón­leika­ferðar um Evr­ópu eft­ir ára­mót­in. Það er einkar gleðilegt að sveit­in snúi nú aft­ur til Íslands en hún hélt eft­ir­minni­lega tón­leika á Nasa fyr­ir 11 árum.“ segir í tilkynningu frá Hljómahöll.

Miðasala á tónleikana hefst föstudaginn 27. september kl. 11 á tix.is. Miðaverði er stillt í hóf og er 6.900 kr. í stæði og 7.900 kr. í sæti á svölum. Athugið að takmarkað magn miða er í boði á tónleikana.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing