Tveir karlmenn og ein kona, réðust á mann og rændu af honum bíl og síma. Skildu þau manninn eftir slasaðan á vettvangi.
Lögregla handtók fólkið á sjötta tímanum í gær og er málið til rannsóknar, að því er segir í dagbók lögreglu. Er fólkið grunað um rán, þjófnað, nytjastuld bifreiðar, umferðaróhapp og afstungu, akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna, eignaspjöll og fleiri brot.
Þá segir í dagbók lögreglu að fólkið hafi ekið bifreiðinni yfir umferðareyjur, móti rauðu ljósi, utan í aðra bifreið, á göngustígum þar sem börn voru nærri og í gegnum garð við íbúðarhús. Þremenningarnir voru vistaðir í fangageymslu. Þetta kom fram á vef Vísis.