Þegar að Pauline Spagnola varð 100 ára þá var haldin vegleg afmælisveisla henni til heiðurs í Golden Living East Mountain Center í Pensilvaníu í Bandaríkjunum.
Blaðamaður frá WNEP kom á svæðið í tilefni af afmælinu og spurði Pauline hver væri lykillinn að langlífi.
Blaðamanninum til talsverðrar undrunar var svar Pauline stutt og laggott: „Nóg af áfengi!“
Hún var þó ekki spurð nánar út í áfengisvenjur sínar – en ætli þær séu ekki bara opnar til túlkunar…