Ef þú hefur ekki búið undir steini síðastliðinn áratug eða svo, þá hefur þú pottþétt heyrt af glúteni og ert annaðhvort alfarið á móti því eða finnst þetta vera ofstækisbull og borðar enn þitt glúten.
En veistu hvað glúten er?
Það eru ekki margir með það 100% á hreinu, svo í þessu myndbandi fer Dan Souza í ítarlega sýnikennslu til að útskýra fyrir okkur tilgang glútens: