Auglýsing

Tattú geta verið HÆTTULEG heilsunni – samkvæmt þessari rannsókn!

Niðurstöður rannsóknar benda til þess að 1 af hverjum 10 einstaklingum sem fá sér tattú gætu þurft að kljást við gríðarlega neikvæðar heilusfarslegar afleiðingar.

Maria Leger er prófessor við háskólann í New York og stóð hún fyrir rannsókninni.

Hún segir að 1 af hverjum 10 einstaklingum sem tóku þátt í rannsókninni hefðu upplifað eftirkvilla sem hefðu verið svo slæmir að fólk hefði þurft sterameðferð og einhverjir hefðu jafnvel þurft að fara í laseraðgerð til að láta fjarlægja blekið úr húðinni.

44% prósent þeirra sem upplifðu erfiðleika í kringum nýja tattúið höfðu fengið sér tattú sem innihélt rauðan lit.

Margir upplifðu kláða og útbrot á tattúinu vikur, mánuði og jafnvel ár eftir að hafa fengið sér það.

Maria segir jafnframt að ekki sé nægilega vel búið að rannsaka langtíma áhrif þess að sprauta bleki ofan í húðina og hvetur fólk til að fara varlega.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing