Að fá skalla er eitthvað sem fæsta karlmenn dreymir um. Þetta er tímabil sjálfsefa og erfiðleika fyrir marga.
Það eru hins vegar góðar fréttir við þetta allt. Enda á maður alltaf að líta á jákvæðu hliðar lífsins!
Frank Muscarella sem er sálfræðingur við Barry University – hefur stúderað þetta í þaula og lumar á nokkrum áhugaverðum niðurstöðum:
Fyrir það fyrsta er mörgum konum sem finnast sköllóttir menn vera heitari en þeir sem eru með hár. Jason Statham einhver?
Í öðru lagi sýndi önnur rannsóknað þótt að sumum konum finnist sköllóttir menn ekki meira aðlaðandi en þeir sem eru með hár – þá þykja þeir líklegri til að líta út fyrir að vera gáfaðari, áhrifameiri, betur menntaðir, með hærri status í þjóðfélaginu og hjálpsamari.
Í þriðja lagi þá hefur nýleg rannsókn sýnt að þeir sem eru sköllóttir eða að fá skalla fyrir þrítugt – 45% ólíklegri til að þróa með sér blöðruhálskrabbamein.
Þannig skallinn er ekkert nema snilldin eina!