Hollywood leikarinn Pierce Brosnan þakkaði Húsvíkingum fyrir gestrisnina í færslu á Instagram síðu sinni í gær. Brosnan hefur dvalið á Húsavík undanfarna daga við tökur á Eurovision mynd Will Ferrell.
Tökur á myndinni stóðu yfir á Húsavík um helgina en um 200 manna tökulið var í bænum. Brosnan hefur verið duglegur að birta myndir á Instagram.