Þetta er rosa einfalt. Ef þú vilt láta taka eftir þér á stefnumótasíðum eins og Tinder – þá er eitt ráð sem þú getur notað til að breyta myndunum þínum.
Fimm konur tóku þátt í tilraun sem gekk út á það að þær settu inn mynd af sér inn á stefnumótasíðu þar sem þær voru klæddar í svart.
Viku seinna skiptu þær um mynd. Það eina sem var öðruvísi á þessari mynd var að þær voru klæddar í litríkari föt, ekkert annað breyttist. Sama hárgreiðsla, sama pósa og sami svipur.
Það kom í ljós að myndin þar sem þær voru í litríkum fötum fékk 45 % meiri athygli!
Svo þú þarft í raun og veru bara að breyta einum hlut á Tinder til að fá 45% meiri athygli – og þar með 45% meiri líkur til að finna það sem þú ert að leita að!