Hljómsveitin Hatari sendi frá sér glænýtt tónlistarmyndband í dag við lagið Klámstrákur.
Í myndbandinu sýnir Klemens Hannigan, annar söngvari hljómsveitarinnar, færni sína í súludansi. Klemens, sem undirbjó sig með því að fara í Polefitness tíma með glæsilegum árangri, tekur bæði hífingar og sveiflur á súlunni.
Sveitin er á leið í tónleikaferðalag um Evrópu árið 2020 en hér fyrir neðan má sjá tónlistarmyndbandið við nýja lagið.