Hljómsveitin Grísalappalísa var að gefa út nýtt lag og tónlistarmyndband. Lagið heitir Þrjúhundruðsextíuogfimmdagablús (sjáðu hjónin).
Í myndbandinu sjást veislugestir dansa og skemmta sér í brúðkaupi Elvis og Pricillu. Með hlutverk þeirra fara þau Kolfinna Nikulásdóttir úr Reykjavíkurdætrum og Haukur Valdimar Pálsson.
Skýlið Studio sá um framleiðslu á myndbandinu.
Hægt er að sjá myndbandið ásamt því að hlusta á lagið hér fyrir neðan.