Fyrsti kebab-sjálfsalinn opnaði fyrir helgi á Íslandi. Nú er hægt að fá heita máltíð á flugvellinum í Keflavík hvenær sem er sólarhrings.
Maciek Strozynski, eigandi Viking-Kebab, segir í samtali við Fréttablaðið að vel hafi gengið frá því að sjálfsalinn opnaði fyrir helgi. Hann fari um tvisvar á dag til að fylla á og að um sé að ræða fyrsta skipti sem gestir og starfsmenn flugvallarins geti fengið heita máltíð hvenær sem er sólarhrings á flugvellinum. Sjálfsalann bjó Maciek til sjálfur. Hann kostaði um 3,5 milljónir í byggingu og tók um 1 ár að gera sjálfsalann klárann.
„Kebab-bátarnir eru í kæli inni í vélinni og svo þegar pantaður er kebab þá fer hann í grill og er hitaður þar. Eftir fjórar mínútur þar færður svo heitan og fínan kebab-bát,“ segir Maciek.
„Það er heitur matur allan sólarhringinn. Eini staðurinn sem er opinn allan sólarhringinn á flugvellinum þar sem hægt er að fá heitan mat,“ bætir hann við
Þetta kom fram á vef Fréttablaðsins.