Vörubifreið og fólksbifreið sem komu úr gagnstæðum áttum skullu saman á Þjóðvegi 1 í Suðursveit fyrir skömmu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Tvennt var í fólksbifreiðinni, erlendir ferðamenn, og eru þau bæði slösuð en þó með meðvitund. Þyrla LHG lagði af stað með fólkið af slysstað, til Reykjavíkur, um 19:10 í kvöld.
Vörubifreiðin er í vegkantinum og verður ekki fjarlægð fyrr en á morgun. Vegurinn verður opnaður fljótlega en tafir verða síðan aftur á umferð um vettvang á morgun þegar vörubifreiðin verður fjarlægð en til þess þarf stórvirki tæki. Báðar bifreiðarnar eru mikið skemmdar og a.m.k fólksbifreiðin ónýt.