Karlmaður var handtekinn á skemmtistað í miðbæ Reykavíkur á fjórða tímanum í nótt grunaður um að hafa kastað glasi í höfuð annars manns.
Þegar lögreglumenn komu á staðinn, neitaði maðurinn að segja til nafns. Kvaðst hann hafa tekið nokkur ár í lögfræði og hélt því fram að honum bæri engin skylda til þess. Hann var í kjölfarið færður í fangaklefa.
Nóttin var annars óvenju róleg samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en eini einstaklingurinn sem gistir fangaklefa eftir hana sá sem taldi sig ekki þurfa að gera grein fyrir sér.
Lögreglan hafði nokkuð afskipti af ökumönnum sem voru annað hvort undir áhrifum áfengis eða fíkniefna eða hvoru tveggja. Tilkynnt var um umferðaóhapp í Breiðholti í gærkvöldi um sjöleytið vegna ísingar. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Þetta kom fram á vef Mbl.