Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður ráðgerir að opna á næsta ári nýjan afþreyingarstað í 1.850 fermetra húsnæði við Skútuvog 2.
Þetta munu verða tveir 9 holu innanhússgolfvellir, veitingasala og sportbar. Að sögn Sigmars er hugmyndavinna komin á fullt og heilmikil vinna fyrir höndum en stefnt er á að dyrnar á þessari afþreyingarveröld verði opnaðar eigi síðar en 12. júní nk.
„Þetta er í raun og veru „all-in“ fjárfesting. Og ég væri ekki að taka þetta stóra skref nema ég tryði því að þetta væri frábær hugmynd,“ segir Sigmar í samtali við Morgunblaðið. En Sigmar er einnig helmingshluthafi í Hlöllabátum og vinnur í því að opna nýjan sportbar í Mosfellsbæ,Barion, þar sem Arion banki var áður til húsa.
Á facebook síðu sinni segir Sigmar staðinn Swingers Crazy Golf í London gefa bestu myndina af þeim ævintýraheimi sem hann hyggst skapa í Skútuvoginum og segir að allir geti sigrað í MiniGolf, líka þeir sem kunna ekkert.