Hildur Guðnadóttir tónskáld er tilnefnd til Grammy-verðlaunanna 2020 fyrir tónlist sína við sjónvarpsþáttaröðina Chernobyl, en tilnefningarnar voru kynntar í dag. Hildur er tilnefnd fyrir bestu tónlist í sjónrænum miðlum, en sá flokkur nær yfir kvikmyndir, sjónvarpsþætti og tölvuleiki. Grammy-verðlaunin verða afhent 26. janúar næstkomandi
Hildur hefur nú þegar hlotið Emmy verðlaun og World Sountrack verðlaun fyrir tónlistina í myndinni, en tónlistina skapaði hún án hljóðfæra og notaðist eingöngu við hljóð úr kjarnorkuveri og eigin rödd.
Einnig hefur tónlist Hildar í stórmyndinni Joker vakið mikla athygli og hlotið lof síðan myndin kom út.
Craig Mazin, handritshöfundur Chernbyl, óskaði Hildi til hamingju á Twitter og gaf í skyn að hún myndi vinna óskarsverðlaun fyrir Jokerinn.
„Hún vann E… nú kannski G… Jókerinn mun sennilega gefa henni O,“ skrifaði Mazin.
Hér að neðan má heyra eitt lag úr hljóðverki Hildar í Chernobyl-þáttunum.