Það að halda sér í formi á að lengja lífið, styrkja hjartað og sérfræðingar segja að ellin verði hreinlega hamingjusamari vegna þess að líkaminn er sprækari en hann væri annars.
En það er spurning hvort þú eigir samt ekki að æfa þannig að þú náir því að verða gamall, en ekki leggja líf og limi í hættu fyrir magavöðvana eins og Luis Fernando Candela gerir.
Það er rúmlega 3000 metra fall niður af þessum steini sem hann velur að æfa sig á.
Sem betur fer þá gerir hann þetta ekki oft – en nógu oft til þess að „áhættuæfingarnar“ hans hafi vakið athygli.
Hann segist elska að gera svona hættulegar æfingar, en þessi sé klárlega sú hættulegasta. Hann bætir því svo við að kærastan hans sé hreint ekki hrifin af þessum tilraunum.
Við skiljum hana vel, farðu varlega Luis.