Fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, Sara Björk Gunnarsdóttir, er búsett í borginni Wolfsburg í Þýskalandi þar sem hún spilar með einu besta kvennaliði Evrópu.
Sara gerir upp ferilinn og uppvöxt sinn í nýrri bók, Óstöðvandi. Sögu hennar skráði Magnús Örn Helgason knattspyrnuþjálfari og bókin er gefin út af Benedikt bókaútgáfu.
„Ég var búin að hugsa lengi um það hvort ég ætti að ræða um reynslu mína. Ef til vill finnst einhverjum skrýtið að svo ung manneskja vilji segja sögu sína. En þrátt fyrir ungan aldur hef ég upplifað og gengið í gegnum mikið á ferlinum, sumt skrifaði ég niður og hugsaði þá með mér að kannski gæti ég hjálpað einhverjum með frásögn minni,“ segir Sara. „Mögulega einhverri sem langar til þess að verða atvinnukona í fótbolta.
Þetta var miklu erfiðara en ég bjóst við. Ég var stundum andlega búin á því og áttaði mig ekki á því hversu djúpt ég þurfti að kafa í tilfinningar mínar og sjálfa mig. Þegar eitthvað slæmt gerist þá hef ég tilhneigingu til að setja tilfinningar mínar til hliðar. Ég hugsaði stundum um hvort ég ætti ekki bara að hætta við. Stundum var þetta svo mikið af tilfinningum sem komu upp á meðan ég var að tala við Magnús að ég grét á eftir. Ég vissi samt að til þess að koma þeim boðskap sem ég vildi á framfæri þyrfti ég að vera hundrað prósent heiðarleg.
Það eru kannski aðrir sem munu standa í sömu sporum og ég, ég trúi því að með því að vera opin og segja nákvæmlega frá geti það auðveldað öðrum að sjá hlutina skýrt og bregðast við þeim.“
Hún þurfti ekki einungis að takast á við harða andstæðinga á vellinum. Átökin voru einnig innra með henni og við hennar eigin liðsfélaga, sem dreifðu um hana sögum. Þegar hún var sautján ára gömul var grófum slúðursögum dreift um hana og Sigurð Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfara.
„Sögusagnirnar voru á þá leið að við stæðum í framhjáhaldi. Þetta var mikið áfall. Ég átti kærasta og Siggi Raggi átti konu og barn. Þetta var sérlega rætin kjaftasaga og atlaga að mannorði okkar. Slúðursögurnar gáfu í skyn að ég ætti ekki plássið í landsliðinu skilið. Ég var sjálf ekki viss um hvernig ég ætti að tækla þetta og varð óörugg og kvíðin. Foreldrar mínir studdu vel við mig,“ segir hún.
„Ég ákvað að snúa þessu við. Ég skyldi ekki láta brjóta mig niður. Mér finnst merkilegt að ég hafi náð að bregðast þannig við svo ung því þetta hefði auðveldlega getað eyðilagt mig og brotið niður. Ég hugsa að keppnisskapið hafi hjálpað mér í gegnum þessa reynslu.“
Þegar Sara er spurð um framtíð kvennaknattspyrnu á Íslandi segir hún að það þurfi að taka stærri skref. En fyrir þær stelpur sem vilja ná langt þá mæli ég með því að fara út að spila til að ná í reynslu. Hún er dýrmæt og þroskandi. „En erfitt er það, þetta er það erfiðasta sem ég hef gert, að fara og vera í áratug frá fjölskyldunni. En ég er betri leikmaður og ég hef þroskast sem manneskja. Ég tala fjögur tungumál og hef kynnst fólki sem ég hefði aldrei annars kynnst.“
Þetta kom fram á vef Fréttablaðsins.