Tónlistarmaðurinn Auður, sem heitir réttu nafni Auðunn Lútersson, heldur tónleika í Hannesarholti þann 25. nóvember og mun allur ágóði þeirra renna til UN Women.
Hann segist bæði stoltur og glaður að geta gefið vinnuna sína.
„Um er að ræða málstað sem er mér mjög nærri. Ég starfaði 3 sumur fyrir UN Women auk þess að fá að vinna sem sjálfboðaliði í nokkrum góðum verkefnum. Sem strákur í þjóðfélagi sem stendur framarlega í jafnréttismálum lít ég svo á það sé nauðsynlegt að leggja mitt af mörkum. Ég er ekki gallalaus og er enn að læra að verða betri femínisti í mínu daglega lífi. Nú þegar það er eitt ár liðið síðan ég gaf út plötuna mína Afsakanir vil ég nýta tilefnið til að gefa til baka. Ég er mjög stoltur að geta gefið vinnuna mína og vil sérstaklega þakka Steinunni umboðsmanni mínum fyrir að hjálpa mér að framkvæma þessa hugmynd.“