Nemendur Valhúsaskóla, Grunnskóla Seltjarnarness, voru sendir heim í dag sökum neikvæðrar umfjöllunar um skólann síðustu daga.
Forsagan er sú að foreldrar tíundu bekkinga kvörtuðu til skólans, bæjaryfirvalda og menntamálaráðuneytisins í vor vegna mikillar óánægju með námsmat. Að mati foreldrafélags Grunnskóla Seltjarnarness gaf námsmatið í vor ekki rétta mynd af stöðu nemenda. Þá taldi félagið að nemendum hafi ekki verið gefinn kostur á að bæta sig. Vegna þess hafi nemendur skólans ekki átt sömu möguleika á að komast inn í þann framhaldsskóla sem þeir helst kysu, samanborið við jafnaldra sína.
Á bæjarstjórnarfundi síðastliðinn miðvikudag var fjallað um greinargerðina og sagðist meirihluti Sjálfstæðisflokksins harma ágreining um námsmatið. Þá voru foreldrar og tíundu bekkingar beðnir afsökunar á því tilfinningalegu tjóni og óþægindum sem námsmatið hafði í för með sér.
Finnst kennurum og stjórnendum grunnskólans að sér vegið af pólítískum fulltrúum á Nesinu og harma þann dóm sem þau segja bæjarfulltrúa hafa fellt með því að biðja nýútskrifaða 10. bekkinga og foreldra þeirra afsökunar á dögunum.
„Kennarar og stjórnendur í Grunnskóla Seltjarnarness harma þann dóm sem pólitískir fulltrúar á Seltjarnarnesi hafa fellt yfir skólanum sínum. Þessi umfjöllun hefur haft þau áhrif inn í skólann að kennurum og stjórnendum finnst freklega að sér vegið og kennarar treysta sér ekki til að taka á móti nemendum í dag. Skólastarf mun því falla niður í dag og upplýst verður um framhaldið þegar það liggur ljóst fyrir,“ segir í bréfinu sem undirritað er af skólastjórnendum.
Þetta kom fram á vef Fréttablaðsins.