Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Suðurlandi, verður skipaður ríkislögreglustjóri til bráðabirgða er Haraldur Johannessen hættir störfum um áramót. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, greindi frá þessu á blaðamannafundi í dag.
Að sögn Áslaugar Örnu eru starfslok Haraldar í góðri sátt, en þau hefðu komist að því í sameiningu að kominn væri tími á nýjan aðila í embættið. Vonast hún eftir því að fá öflugar umsóknir fyrir starfið en staðan verður auglýst fljótlega.
Kjartan verður eins og áður sagði ríkislögreglustjóri til bráðabirgða en hann hyggst ekki sækjast eftir starfinu til frambúðar. Sérstakt lögregluráð tekur til starfa í byrjun nýs árs og mun það funda mánaðarlega. Í því munu allir lögreglustjórar landsins sitja, auk ríkislögreglustjóra.
Þetta kom fram á vef Mbl.