Á áttunda tímanum í morgun kom tilkynningin um reyk í vél bandaríska flugfélagsins Delta. Vélin var á leið frá Minneapolis til Amsterdam og er að gerðinni Airbus A330. Þetta kom fram á vef Mbl.
Talsverður viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli þegar vélin lenti þar klukkan korter yfir átta og voru tveir sjúkrabílar sendir á vettvang ásamt bílum frá Brunavörnum Suðurnesja. Reyndist aðeins um reyk að ræða.
Kom reykurinn úr gólfhitara aftarlega í vélinni en upphaflega var talið að reykurinn hefði komið upp í flugstjórnarklefa vélarinnar.