Auglýsing

Javi hættur í Allir geta dansað

Dansarinn Javi Fernández Valiño hefur síðustu vikur verið dansfélagi Vilborgar Örnu Gissurardóttur í sjónvarpsþættinum Allir geta dansað sem sýndur er á Stöð 2.

Nú hafa framleiðendur þáttanna ákveðið að skipta Javi út fyrir Daða Frey, sem datt út í síðasta þætti, vegna „óviðráðanlegra aðstæðna“. En þetta staðfesta þeir í samtali við Vísi.

Vilborg og Daði Freyr munu því dansa saman á sviðinu í næsta þætti, á föstudagskvöldið.

Hér að neðan má sjá síðasta dans Javi í Allir geta dansað frá því á föstudagskvöldið.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing