Nanna Kristín Magnúsdóttir hefur verið tilnefnd til verðlauna norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins fyrir besta handritið í flokki sjónvarpsþáttaraða á Norðurlöndum fyrir handritið að Pabbahelgum.
Fimm norrænar þáttaraðir eru tilnefndar til verðlauna Nordisk film og TV Fond fyrir framúrskarandi handrit. Nanna Kristín Magnúsdóttir er höfundur Pabbahelga, skrifar þættina, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið.
Eftirfarandi þættir og handritshöfundar eru tilnefndir:
- 22. juli, Noregur – Sara Johnsen
- Kalifat, Svíþjóð – Wilhelm Behrman og Niklas Rockström
- Pabbahelgar, Ísland – Nanna Kristín Magnúsdóttir
- Paratiisi, Finland – Matti Laine
- Når støvet har lagt sig, Danmörk – Dorte Høgh og Ida Maria Rydén
Verðlaunin verða afhent á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Gautaborg 30. janúar. Verðlaunaféð nemur 200.000 norskum krónum.