Hráefni:
- 90 grömm hveiti
- 2 msk kakó
- 1 tsk lyftiduft
- 1/4 tsk salt
- 220 grömm dökkt súkkulaði saxað niður
- 60 gr ósaltað smjör skorið í teninga
- 2 stór egg við stofuhita
- 100 grömm sykur
- 90 grömm ljós púðursykur
- 1 tsk vanilludropar
- 85 grömm súkkulaði dropar
- sjávarsalt til að toppa kökurnar með
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 170 gráður. Setjið bökunarpappír tvær á ofnplötur. Hrærið saman hveiti, kakó, lyftiduft og salt í meðalstórri skál. Setjið dökka saxaða súkkulaðið ásamt smjöri í pott og hitið yfir vatnsbaði (má líka hita í örbylgjuofni). Takið til hliðar og leyfið þessu að kólna örlítið.
2. Þeytið saman egg, sykur og vanilludropa. Stillið næst á lægsta hraða og hellið bráðna súkkulaðinu rólega saman við. Hveitiblandan fer þá saman við og hrært í 20 sek, rétt til þess að þetta blandist allt saman. Hrærið síðast súkkulaði dropana saman við með sleif.
3. Gerið kúlur í hæfilegri stærð úr deiginu og raðið á ofnplöturnar með skeið, hafið 2-3 cm á milli þeirra svo þær renni ekki saman í ofninum. Bakið í 12-14 mín. Takið úr ofninum og dreifið sjávarsalti yfir þær.