Auglýsing

Volg súkkulaðikaka með vanilluís

Hinn fullkomni eftirréttur er að sjálfsögðu volg súkkulaðikaka með vanilluís. Það segja matreiðslumenn Gestgjafans að minnsta kosti. Hérna er fullkomin uppskrift af eftirrétti sem hægt er að reiða fram yfir hátíðarnar. Verði ykkur að góðu!

Hráefni:

2 dl dökkt súkkulaði

2 dl smjör

4 egg við stofuhita

2 dl sykur

1/4 tsk vanilludropar

1 dl hveiti

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 190 gráður. Bræðið súkkulaði og smjör á vægum hita í potti. Á meðan er eggjum og sykri þeytt saman.

2. Bætið hveitinu saman við eggjablönduna og hrærið létt saman. Þegar súkkulaðiblandan hefur kólnað er henni hrært saman við eggjablönduna ásamt vanilludropum.

3. Hellið í lítil eldföst mót (uppskriftin er fyrir 4 mót), ekki fylla þau alveg heldur bara 3/4. Bakið í 14 mín en fylgist vel með þeim, alls ekki baka of lengi. Þær eiga að vera svampkenndar að ofan og blautar í miðjunni. Berið fram með vanilluís eða þeyttum rjóma.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing