Eldur kom upp í tveimur bílum eftir árekstur á Korpúlfsstaðavegi skömmu fyrir kl. 8 í morgun. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kom á staðinn og slökkti eldinn.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu kom eldur upp í öðrum bílnum við áreksturinn og barst svo í hinn. Einn var í hvorum bíl og báðir sluppu óslasaðir frá árekstrinum. Þeir höfðu báðir náð að forða sér úr bílunum áður en eldurinn kom upp.
Búast má við því að Korpúlfsstaðavegi verði lokað í einhvern tíma á meðan að unnið er að því að fjarlægja bílana af staðnum.
Þetta kom fram á vef Mbl.