Hráefni:
- 1 pakkning pasta að eigin vali
- 1 box tómatar
- 1 dl vatn
- 1 dl rifinn ostur að eigin vali
- pestó (uppskrift hér fyrir neðan)
Pestó:
- 5 dl spínat
- 2 dl basilika
- 1/2 dl furuhnetur
- 1 dl ólívuolía
- 1/2 – 1 dl parmesanostur
- 1/2 tsk salt
- 3 hvítlauksgeirar
- safi af einni sítrónu (má sleppa)
Aðferð:
1. Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu. Skerið tómatana til helminga.
2. Á meðan pastað sýður þá setjum við hráefnið í pestóið í matvinnsluvél eða maukum það með töfrasprota þar til úr verður silkimjúkt pestó.
3. Hitið ofninn í 190 gráður. Blandið soðna pastanu, pestóinu og tómötunum vel saman í skál og bætið 1 dl af vatni saman við. Hellið þessu yfir í eldfast form og dreifið ostinum yfir. Leggið álpappír lauslega yfir og bakið í ofninum í um 10-15 mín eða þar til osturinn hefur bráðnað vel.