Margrét Einarsdóttir fær Guldbaggen verðlaunin fyrir búningana í ELD OG LAGÖR. Þetta kemur fram á vef klapptre.is
Margrét Einarsdóttir búningahönnuður vann í gær Guldbaggen, kvikmyndaverðlaun Svía, fyrir búninga í kvikmyndinni Eld & lågor eftir Måns Mårlind og Björn Stein. Margrét er vel þekkt í kvikmyndaheiminum en hún hefur m.a. unnið til nokkurra Edduverðlauna fyrir búninga ársins eins og í kvikmyndunum Hrútar, Vonarstræti og Á annan veg.
Stiklu myndarinnar má sjá hér að neðan: