Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur borist fjöldi tilkynninga í dag frá fólki vegna sms skilaboða sem því er að berast.
„Þessar tilkynningar eiga flestar það sameiginlegt að vera frá aðila sem kallar sig Ken og vill hann endilega að þú staðfestir móttöku í netfang sem hann gefur upp,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
„Við viljum brýna fyrir fólki að svara ekki svona sms- skilaboðum og fara alls ekki eftir því sem farið er framá að verði framkvæmt, það er að senda póst á uppgefið netfang!“