Stefnt er að því að koma rafrænum ökuskírteinum í gagnið fyrir 1. júní á þessu ári.
Þessu greinir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra frá á Twitter-síðu sinni. Hún segir frá því að síðustu mánuði, í samvinnu við ríkislögreglustjóra, hafi verið unnið að útgáfu stafrænna ökuskírteini.
„Mikil þróun hefur verið í notkun öruggri snjallsímaþjónustu sem gerir það kleift að gefa ökuskírteini út með öðrum hætti en á plasti,“ skrifar Áslaug.
„Stafræn ökuskírteini verða til hagsbóta fyrir fólk enda síminn oftast með í för og líkur á að þessu fylgi töluverð þægindi fyrir einstaklinga,“ heldur hún áfram.
„Nú er tæknileg útfærsla tilbúin og ekkert því til fyrirstöðu að hefja útgáfu á stafrænum ökuskírteinum fyrir snjallsíma, jafnt fyrir Android og iOS stýrikerfi. Notendur mun geta fengið stafrænu ökuskírteinin með því að sækja um þau á Íslandi með rafrænum skilríkjum.“
?Hversu oft er þetta með í för þegar þú ferð út að keyra?
?Hversu oft er síminn með?
?♀️Ég veit að þessi mynd er æði. pic.twitter.com/xgLewROM3N— Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) January 29, 2020