Hráefni:
- 120 gr hrísgrjónanúðlur
- 3 msk bragðlaus olía til steikingar
- 250 gr kjúklingur, skorinn í litla strimla
- 1/2 rauð paprika, skorin í mjóar ræmur
- 1/2 dl gulrætur, skornar í mjóar ræmur
- 2 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 1 egg, hrært upp
- 1 vorlaukur, skorinn niður
- 1/2 dl salthnetur, saxaðar gróft
- 2 msk ferskt kóríander, saxað
Sósan:
- 2 msk púðursykur
- 1 msk sojasósa
- 1 msk fiskisósa
- 1 msk lime safi
- 1 msk hrísgrjóna edik
- 1 msk hnetusmjör
- 1 msk Sriracha eða chillimauk
- ¼ tsk engifer
- ⅛ tsk svartur eða hvítur pipar
Aðferð:
1. Eldið núðlurnar eftir leiðbeiningum á umbúðum. Eftir suðuna eru þær skolaðar með köldu vatni, vatnið sigtað frá og núðlurnar settar í skál með 1 msk af olíu. Leggið til hliðar.
2. Blandið öllum sósu hráefnum saman í meðalstóra skál. Hrærið vel saman og leggið til hliðar.
3. Hitið eina msk af olíu á stórri pönnu. Steikið kjúklinginn í 3-4 mín eða þar til hann er eldaður í gegn. Færið hann yfir á disk eða fat. Hitið aftur 1 msk af olíu á sömu pönnu og steikið paprikuna í 1 mín. Bætið þá gulrótum og hvítlauk og steikið áfram í 1 mín. Lækkið örlítið hitann og hellið egginu á pönnuna og hrærið stöðugt í því þar til það er klárt.
4. Hellið núna sósunni á pönnuna ásamt núðlunum. Blandið öllu vel saman og hrærið vel í þessu í 1-2 mín á meðan núðlurnar hitna vel í gegn. Bætið næst kjúklingnum, vorlauknum og hnetunum og leyfið þessu blandast vel saman í um 2-3 mín. Smakkið þetta til og bætið við því sem þarf, meiri chilli sósu, sojasósu eða jafnvel smá lime. Toppið með ferskum kóríander áður en borið er fram!