Vegna kórónaveirunnar sem á upptök sín í Wuhan í Kína eru þau flugfélög sem þjónusta Póstinn, nú hætt að fljúga til Kína. Vegna þessa er ekki hægt að senda sendingar til Kína með Póstinum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
„Því miður er þessi staða komin upp, það lá í loftinu í síðustu viku að það yrði mjög erfitt að halda uppi þjónustu til og frá Kína en við vonuðumst til þess að við myndum ekki þurfa að loka alveg fyrir póstflutninga þangað. Við getum í raun lítið gert þar sem okkar þjónustuaðilar eru hættir að taka við sendingum til landsins. Það er afar erfitt að segja til um hve lengi þetta ástand muni vara en við vonumst að sjálfsögðu til að það verði ekki lengi. Um leið og opnast fyrir möguleikann aftur munum við láta vita af því“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Póstsins, í tilkynningunni.
Þetta kemur fram á vef Mbl