Húsráðandi í miðbænum í Reykjavík vaknaði upp við að ókunnugur maður kom inn um svaladyrnar hjá honum skömmu eftir klukkan 2 í nótt.
Maðurinn réðst á húsráðanda sem hlaut nokkra sjáanlega áverka. Ókunnugi maðurinn komst undan en málið er í rannsókn og unnið eftir ýmsum vísbendingum að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kom fram á vef Mbl