Leikstjórinn Quentin Tarantino, 56 ára, eignaðist í gær dreng ásamt eiginkonu sinni Daniellu Pick, 36 ára. Drengurinn fæddist í Tel Aviv en Daniella er frá Ísrael.
Þetta er fyrsta barn þeirra beggja en hjónakornin giftu sig við leynilega athöfn árið 2018 og voru margar af stærstu stjörnum Hollywood viðstaddar.