Þriðja þáttaröð af Netflix þáttaröðinni vinsælu, Ozark, er væntanleg þann 27. mars og nú er komin stikla úr þáttaröðinni!
Byrdes fjölskyldan er mætt aftur og leggur allt undir í þessari þáttaröð. Á meðan spennan magnast í kringum nýja spilavítið þeirra, The Missouri Belle, keppast Marty og Wendy við að halda jafnvægi á milli öryggi fjölskyldunnar og ört vaxandi peningaþvættis starfsemi þeirra.