Samkomubann á landinu öllu tekur gildi á miðnætti 15. mars, aðfaranótt mánudags. Mun það gilda í 4 vikur. Um er að ræða samkomur þar sem fleiri en 100 manns koma saman, að sögn heilbrigðisráðherra. Á viðburðum þar sem færri koma saman er gert ráð fyrir því að tveir metrar séu á milli fólks.
Einnig verður framhalds og háskólum lokað á meðan á samkomubanninu stendur. Gert er ráð fyrir því að starf leikskóla og grunnskóla haldi áfram, þó með ákveðnum skilyrðum.
Þessu greindi Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra frá á blaðamannafundi í morgun.