Eldur kom upp á skyndibitastaðnum Dirty Burger & Ribs á Miklubraut rétt fyrir klukkan ellefu í morgun.
Um var að ræða smávægilegan eld sem kom upp í rafmagnstöflu og gekk greiðlega að slökkva hann. Ekki var vitað um tjón en ljóst var að eldsvoðinn myndi hafa áhrif á rekstur staðarins í dag.
Þetta kemur fram á vef mbl