Yfir 90 smit greindust í gær af völdum Covid-19 veirunnar, hér á landi, og eru staðfest tilfelli nú 568. Þegar þetta er skrifað eru 6.340 manns í sóttkví og 12 einstaklingar á sjúkrahúsi. Eru þetta nýjustu tölur af síðunni covid.is
Samkvæmt síðunni eru 546 einstaklingar nú í einangrun og teljast 22 einstaklingar nú hafa náð bata. Þá dvelja 12 einstaklingar á sjúkrahúsi og 6.340 eru í sóttkví.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála á upplýsingafundi fyrir blaðamenn, sem boðaður er af Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, klukkan 14 í dag,.