Á blaðamannfundi í dag skoraði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, á fólk að taka veirulausan klukkutíma í kvöld á milli klukkan átta og níu.
Covid-19 veiran er, eðlilega, ofarlega í huga hjá flestum og er fátt annað sem talað er um. Víðir hvetur landsmenn til þess að tala um eitthvað annað í kvöld í eina klukkustund.
Erum við ekki öll með?