Sjúkratryggingar Íslands og Icelandair Hotels hafa gert samkomulag um að lykilstarfsmenn heilbrigðiskerfisins og almannavarna gista á Hótel Reykjavík Natura endurgjaldslaust.
Ef þeir geta ekki dvalið heima hjá sér af hættu við smit af COVID-19, geta þeir gist á hótelinu. Þetta kemur fram í tilkynningunni fá Sjúkratryggingum Íslands.
„Um er að ræða þá starfsmenn heilbrigðiskerfisins og Almannavarna, sem gegna sérstakri ábyrgð samkvæmt neyðaráætlun heilbrigðiskerfisins og innan stjórnstöðvar Almannavarna eða búa yfir sérstakri þekkingu eða færni sem er nauðsynleg við framkvæmd neyðaráætlunarinnar. Að beiðni heilbrigðisyfirvalda var Sjúkratryggingum Íslands falið að finna úrræði til að mæta þessum þörfum og í kjölfar verðfyrirspurnar var ákveðið að þiggja boð Icelandair Hótels sem boðið hafa yfirvöldum endurgjaldslaus afnot af Hótel Reykjavík Natura,“ segir í tilkynningunni.
„Yfirvöld eru þakklát þessu einstaka framtaki Icelandair Hótels og vilja jafnframt koma á framfæri sérstöku þakklæti til þeirra hótela sem leitað var til, fyrir skjót og höfðingleg tilboð, sem sýna enn og aftur þann kraft og samtakamátt sem býr í íslensku samfélagi þegar hætta steðjar að.“
Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins