Leikarinn og grínistinn Steindi og kona hans Sigrún, hafa nú eignast sitt annað barn. Þessu greinir Steindi frá á Instagram síðu sinni í dag.
„Við gætum ekki verið hamingjusamari með nýja fjölskyldumeðliminn og ég gæti ekki verið stoltari af Sigrúnu að hafa gengið í gegnum þetta aftur. Þvílíkt hörkutól. Móðir og barni heilsast vel,“ skrifar Steindi í færslunni.
Þetta er annað barn Sigrúnar og Steinda en þau eiga fyrir hina fimm ára gömlu Ronju Nótt.