Hráefni/Sykraðar valhnetur:
- 3 dl valhnetur
- 1/2 dl hunang
- salt á hnífsoddi
Hráefni/Brie ostur:
- 1 brie ostur
- 2-3 msk hungang
- nokkrir stilkar rósmarín
- stökkt baquette brauð eða kex
Aðferð/sykraðar valhnetur:
- Leggið bökunarpappír á ofnplötu. Hitið þurra pönnu í 2 mín eða þar til hún verður vel heit. Setjið þá valhneturnar á pönnuna ásamt hunangi og salti. Hrærið stanslaust í þessu þar til hunangið þykknar upp og hjúpar hneturnar. Það kemur dásamleg karamellulykt þegar þetta er klárt, passið að brenna þetta ekki.
- Hellið hnetunum á ofnplötuna og dreifið vel úr þeim. Leggið til hliðar og leyfið þeim að kólna við stofuhita.
Aðferð/brie ostur:
1. Hitið ofninn í 170 gráður. Leggið ostinn í miðjuna á eldföstu móti. Leggið 2 rósmarín stilka á ostinn ásamt örlitlu hunangi.
2. Bakið í 10-12 mín eða þar til osturinn er orðinn mjúkur viðkomu. Takið ostinn úr ofninum og leyfið honum að kólna í örfáar mínútur áður en hann er borinn fram. Toppið ostinn með extra hunangi, rósmarín. Berið fram með góðu stökku brauði eða kexi og sykruðu hnetunum.