Stundum er lífið eins og bíómynd.
Það voru margir sem fylgdust með þegar að Georgia Dome íþróttaleikvangurinn var sprengdur, en hann var heimavöllur Atlanta Falcons í NFL deildinni.
Bandaríska sjónvarpsstöðin The Weather Channel var með beina útsendingu á vefnum til að gefa fólki færi á að fylgjast með.
Rétt þegar sprengingin fór fram kom einmitt rúta og fótóbombaði mómentið á glæsilegan hátt!