Nýjir landsliðsbúningar verða kynntir í júní en Knattspyrnusamband Íslands hefur gert sex ára samning við íþróttavöruframleiðandann Puma. Landsliðin hafa leikið í búningum frá Errea frá árinu 2001.
Einnig verður nýtt landsliðsmerki á nýju búningunum og verður það einnig kynnt í júní.
Knattspyrnusamband Íslands hefur samið við íþróttavöruframleiðandann PUMA til næstu sex ára.
Samningur KSÍ og PUMA tekur gildi 1. júlí og tekur við af samningi KSÍ og Errea, en landsliðin hafa leikið í Errea fatnaði frá árinu 2001. https://t.co/sJBvpUmDNn#fyririsland pic.twitter.com/pXsg8RMl4g
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) May 26, 2020