Ráðgjafafyrirtækið Capacent mun óska eftir gjaldþrotaskiptum í dag og var dagurinn í gær síðasti starfsdagur fyrirtækisins. Þetta kemur fram á vef Vísis
Hjá fyrirtækinu starfa um fimmtíu manns, meirihluti þeirra eru ráðgjafar við ráðningar og stefnumótun, og fékk starfsfólkið að vita af rekstrarerfiðleikum fyrirtækisins fyrir um tíu dögum síðan.
Capacent var upphaflega stofnað árið 1983 í Svíþjóð, en félagið hefur verið með skrifstofur þar í landi, á Íslandi og í Finnlandi.