Klaustur bar mun heita Aldamót. Barinn komst heldur betur í sviðsljósið árið 2018 þegar upptökur af samtali þingmanna, sem sátu þar við drykkju, voru sendar til fjölmiðla.
Uppljóstrarinn sem sendi upptökurnar kallaði sig ´Marvin´en síðar kom í ljós að þetta var kona að nafni Bára Halldórsdóttir.
Barnum var lokað fyrir nokkrum vikum vegna breytinga og blésu forsvarsmenn Klaustur til hugmyndasamkeppni um nýtt nafn á staðinn.
„Við vorum með hugmyndasamkeppni hjá okkur í samstarfi við markaðsstofuna og svo var kosið um nafn; bæði með hugmyndum frá samfélagsmiðlum og frá starfsfólki,“ segir Valgarður Finnbogason rekstrarstjóri í samtali við Fréttablaðið
„Við stefnum á að opna undir nýjum formerkjum þannig að fólk geti komið og séð breytingarnar. Við erum mjög spennt að sýna viðskiptavinum nýja staðinn.“